Hitið ofninn í 180 gr. og smyrjið formkökuform með smjöri/olíu eða leggið bökunarpappír inní
Byrjið á að búa til kanileplin með því að blanka öllu saman í skál og leggja til hliðar
Næst er kanilsykurinn gerður og lagður til hliðar
Að lokum er formkakan gerð með því að byrja á því að blanda smjöri og sykri saman í hrærivél og blanda saman með k-inu, hrærið saman þar til létt og ljóst. Því næst skal leysa deigið frá skálinni með sleif og bæta eggjunum útí, eitt í einu. Að því loksnu má blanda restinni af hráefnunum saman við og hræra þar til allt hefur blandast saman.
Setja kökuna saman
Byrjið á því að hella helmingnum af deiginu í form, þar á eftir skal setja helminginn af kanileplunum ofaná og að lokum dreifa helminginn af kanilsykrinum ofaná. Hinn helmingurinn af deiginu er settur ofaná kanilsykurinn, þar á eftir restin af eplunum og að lokum restin af kanilsykrinum.
Að samsetningu lokinni skal setja kökuna í ofn og baka í umþb. 50 mín
Á meðan kakan bakast skal blanda öllum hráefnunum af glassúrnum saman og dreifa yfir kökuna þegar hún hefur kólnað í ca. 20-30 mín.