Halló Heimur!

Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef bloggsíðu. Í mörg ár hefur mér langað að safna saman uppskriftum og koma þeim á einn stað þar sem bæði ég næ auðveldlega að finna þær sem og þar sem ég get auðveldlega deilt þeim með öðrum.

Ég hef mikinn áhuga á bakstri og öllu sem því tengist en aukinheldur hef ég áhuga á að elda fljótlegar, góðar og hollar máltíðir. Ég sæki innblástur frá ýmsum stöðum, Instagram, bókum, ferðalögum, fjölskyldu og svo mörgum öðrum stöðum.

Ég vona að þetta komi af góðum notum fyrir einhverja en fyrst og fremst vil ég nýta þennan stað til að halda utan um mínar uppskriftir.

Takk fyrir að vera með mér frá upphafi.