Núna þegar haustið er að nálgast er ekkert betra en að baka eina einfalda köku sem allir ættu að ráða við, bjóða fjölskyldunni í kaffi því það er ekkert ljúfara en að deila bakstri með fólkinu sínu.

Epla og kanil formkaka
Hráefni
Kanilepli
- 2 miðlungsstór Epli, skræld & skorin í teninga
- 2 msk. Púðursykur
- 1 tsk. Kanill
Kanilsykur
- 70 gr. Púðursykur
- 2 tsk. Kanill
Formkaka
- 110 gr. Smjör við stofuhita
- 130 gr . sykur
- 2 stór egg
- 1 tsk. vanilludropar/vanillupaste
- 190 gr. hveiti
- 2.5 tsk. lyftiduft
- 0.5 tsk. salt
- 80 gr. mjólk
- 80 gr. grískt jógúrt
Glassúr
- 60 gr. flórsykur
- 1 msk. mjólk
- 0.25 tsk. vanilludropar/vanillupaste
- Hnífsoddur salti
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180 gr. og smyrjið formkökuform með smjöri/olíu eða leggið bökunarpappír inní
- Byrjið á að búa til kanileplin með því að blanka öllu saman í skál og leggja til hliðar
- Næst er kanilsykurinn gerður og lagður til hliðar
- Að lokum er formkakan gerð með því að byrja á því að blanda smjöri og sykri saman í hrærivél og blanda saman með k-inu, hrærið saman þar til létt og ljóst. Því næst skal leysa deigið frá skálinni með sleif og bæta eggjunum útí, eitt í einu. Að því loksnu má blanda restinni af hráefnunum saman við og hræra þar til allt hefur blandast saman.
Setja kökuna saman
- Byrjið á því að hella helmingnum af deiginu í form, þar á eftir skal setja helminginn af kanileplunum ofaná og að lokum dreifa helminginn af kanilsykrinum ofaná. Hinn helmingurinn af deiginu er settur ofaná kanilsykurinn, þar á eftir restin af eplunum og að lokum restin af kanilsykrinum.
- Að samsetningu lokinni skal setja kökuna í ofn og baka í umþb. 50 mín
- Á meðan kakan bakast skal blanda öllum hráefnunum af glassúrnum saman og dreifa yfir kökuna þegar hún hefur kólnað í ca. 20-30 mín.
