Haustformkaka

Núna þegar haustið er að nálgast er ekkert betra en að baka eina einfalda köku sem allir ættu að ráða við, bjóða fjölskyldunni í kaffi því það er ekkert ljúfara en að deila bakstri með fólkinu sínu.

Epla og kanil formkaka

Haust formkaka með eplum og kanil
Tegund Formkökur
Uppruni Bakstur
Leitarorð Epli, formkaka, haust, kaka, Kanill

Hráefni
  

Kanilepli

  • 2 miðlungsstór Epli, skræld & skorin í teninga
  • 2 msk. Púðursykur
  • 1 tsk. Kanill

Kanilsykur

  • 70 gr. Púðursykur
  • 2 tsk. Kanill

Formkaka

  • 110 gr. Smjör við stofuhita
  • 130 gr . sykur
  • 2 stór egg
  • 1 tsk. vanilludropar/vanillupaste
  • 190 gr. hveiti
  • 2.5 tsk. lyftiduft
  • 0.5 tsk. salt
  • 80 gr. mjólk
  • 80 gr. grískt jógúrt

Glassúr

  • 60 gr. flórsykur
  • 1 msk. mjólk
  • 0.25 tsk. vanilludropar/vanillupaste
  • Hnífsoddur salti

Leiðbeiningar
 

  • Hitið ofninn í 180 gr. og smyrjið formkökuform með smjöri/olíu eða leggið bökunarpappír inní
  • Byrjið á að búa til kanileplin með því að blanka öllu saman í skál og leggja til hliðar
  • Næst er kanilsykurinn gerður og lagður til hliðar
  • Að lokum er formkakan gerð með því að byrja á því að blanda smjöri og sykri saman í hrærivél og blanda saman með k-inu, hrærið saman þar til létt og ljóst. Því næst skal leysa deigið frá skálinni með sleif og bæta eggjunum útí, eitt í einu. Að því loksnu má blanda restinni af hráefnunum saman við og hræra þar til allt hefur blandast saman.

Setja kökuna saman

  • Byrjið á því að hella helmingnum af deiginu í form, þar á eftir skal setja helminginn af kanileplunum ofaná og að lokum dreifa helminginn af kanilsykrinum ofaná. Hinn helmingurinn af deiginu er settur ofaná kanilsykurinn, þar á eftir restin af eplunum og að lokum restin af kanilsykrinum.
  • Að samsetningu lokinni skal setja kökuna í ofn og baka í umþb. 50 mín
  • Á meðan kakan bakast skal blanda öllum hráefnunum af glassúrnum saman og dreifa yfir kökuna þegar hún hefur kólnað í ca. 20-30 mín.